Verkefni og dæmi úr verkstæðinu
Dæmi um verk og bíla sem hafa komið inn á verkstæðið. Efnið er byggt á frásögnum og myndum af eldri vef Aðalverkstæðisins.

Dráttarbeisli
Útvegum og setjum dráttarbeisli undir flestar gerðir bíla.

Tímareimaskipti
Sendu okkur skilaboð á Facebook, tölvupóst, hringdu, sendu SMS eða kíktu bara við og fáðu tilboð í tímareimaskipti.

Orsök eða afleiðing
Hér má sjá afleiðingu af því þegar gormur brotnaði í VW með þeim afleiðingum að hann lagðist utan í hjólbarðann og skemmdi hann. Eigandinn varð einskis var en kvartaði hinsvegar undan gúmmilykt.

„Sjúkur“ Land Rover Defender
Við fengum þennan „sjúka“ Land Rover Defender sjúkrabíl með 3,5 lítra V8 vél í heimsókn. Eigandi bílsins, Emily Lethbridge, heldur úti skemmtilegri bloggsíðu en hún stundar núna ferðalög um landið eftir að hafa lært forníslensku. Við féllum í stafi yfir bílnum. Þetta er herbíll frá breska heimsveldinu og Emily hefur haganlega breytt honum lítillega svo hún geti ferðast á honum um landið. Bíllinn er aðeins ekinn 30 þúsund kílómetra en býr þrátt fyrir það yfir talsverðri reynslu. Við þökkum Emily fyrir viðskiptin og óskum henni góðrar ferðar.

Rafgeymar
Við strákarnir á Aðalverkstæðinu gátum ekki annað en hlegið þegar við vorum búnir að skipta um báða rafgeymana í Benz bifreið sem við vorum með í viðgerð á dögunum. Eins og þið sjáið þá er mikill stærðarmunur, en eins og sagt er, margur er knár þótt hann sé smár. Frank úrsmiður var hæstánægður með okkur og gaf okkur flottar G-Shock derhúfur til að nota í vinnunni þegar við þurfum að vera ýkt flottir á því.

Breska heimsveldið
Sumir dagar raðast öðruvísi upp en aðrir. Það vildi til á dögunum að það varð sannkallaður Jaguardagur hjá okkur á Aðalverkstæðinu þegar þrjú stykki Jaguar áttu tíma sama daginn í viðgerð. Ekki leiddist Bjarti það þar sem hann er mikill áhugamaður um breska bíla.

Fjórða lyftan okkar
Við settum nýlega upp fjórðu lyftuna á verkstæðið okkar. Myndirnar úr uppsetningunni eru af eldri vef okkar.

Verkstæðisaðstaðan
Aðstaðan á Malarhöfða 2 rúmar bæði daglegu bílana og stærri verkefni. [VANTAR: nýrri myndir úr verkstæðinu]
Ertu með verkefni sem þarf að skoða?
Sendu okkur myndir, lýsingu og upplýsingar um bílinn.
