Um Aðalverkstæðið
Við leggjum okkur fram við að gera rekstur bílsins einfaldari. Þú getur komið við, spurt okkur álits og fengið skýrt mat á því hvað þarf að gera.
Við leggjum okkur fram við að létta þér lífið. Okkar sérþekking þýðir áhyggjuleysi fyrir þig. Við erum reynslumiklir bifvélavirkjar með sérþekkingu á ólíkum sviðum. Okkar markmið er að gera þér rekstur bílsins sem auðveldastan. Það er auðvelt að koma við hjá okkur og spyrja okkur álits. Við höfum tíma fyrir þig. Við finnum tíma fyrir bílinn. Renndu við hjá okkur og við munum greina vandamálið. Við tökum vel á móti þér og gerum þér gott tilboð í viðgerðina.

Opnunartími virka daga 08:00–17:30, nema föstudaga til 16:30.
Við erum

Guðbjartur Guðmundsson
Bjartur er snjall og snar í snúningum og lætur sér fátt á hjólum óviðkomandi.

Sigurður H. Harðarson
Sigurður er mikill reynslubolti og fagmaður fram í fingurgóma.

Halldór Sveinsson
Dóri býr yfir mikilli reynslu af verkstæðum á Nýbýlaveginum og mikilli þolinmæði þegar flókin verk eru annars vegar.
Kíktu við á Malarhöfða 2
Eða hafðu samband áður en þú kemur svo við getum fundið tíma fyrir bílinn.
